Um okkur
Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og starfar samkvæmt samkomulagi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi við Sjómannasamband Íslands.
Sjóðurinn er í tveimur hlutum og veitir annars vegar fyrirtækjastyrki og hins vegar einstaklingsstyrki. Helstu verkefni Sjómenntar eru að sinna stuðningsverkefnum og þróunar- og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun. Sjóðnum er ætlað að styrkja rekstur námskeiða og stuðla að nýjungum í námsefnisgerð ásamt því að veita einstaklingum, verkalýðsfélögum og fyrirtækjum beina styrki vegna sí- og endurmenntunar.