1. Fræðslusjóðir
  2. Ríkismennt
  3. Reglugerð Ríkismenntar

Fræðslusjóðir

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík

Sími: 599 1450

Landsmennt

  • Um landsmennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Ríkismennt

  • Um Ríkismennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Sjómennt

  • Um sjómennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Sveitamennt

  • Um Sveitamennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

© Fræðslusjóðir

Reglugerð Ríkismenntar

Reglugerð Ríkismenntar: stofnsamningur sjóðsins. Úthlutunarreglurnar sem sótt er um eftir eru settar af stjórn sjóðsins á grundvelli hennar.

1. gr. Heiti og aðild

Sjóðurinn heitir Ríkismennt og er með heimili og varnarþing í Reykjavík. Ríkismennt er starfsmenntunarsjóður þeirra sem aðild eiga að kjarasamningum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands á landsbyggðinni sem nefnd eru í kjarasamningum aðila sem í gildi eru á hverjum tíma. Stofnfélagar eru þeir sem upp eru taldir í stofnsamningi og samþykkt aðila frá 26. apríl 2005. Sjóðurinn tók formlega til starfa 1. júní 2005. Sjóðurinn starfar með því skipulagi og markmiði sem segir í þessum reglum.

2. gr. Deildir sjóðsins

Sjóðurinn skal rekinn sem deildarskiptur sjóður í tveimur deildum. Annars vegar er það þróunar- og stofnanadeild og hins vegar starfs- og símenntunardeild. Stjórn sjóðsins setur hvorri deild fyrir sig nánari reglur um úthlutun.

3. gr. Tilgangur og markmið

Tilgangur Ríkismenntar er að reka sameiginlegan starfsmenntunarsjóð. Markmið sjóðsins er annars vegar að efla símenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni og hins vegar að auka möguleika stofnana á að þróa starfsvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana á hverjum tíma. Markmiði sínu hyggst Ríkismennt ná með því að styrkja hlutaðeigandi einstaklinga og stofnanir ríkisins á landsbyggðinni til endur- og símenntunar sem og til starfsþróunar. Einnig styrkir sjóðurinn fræðsluverkefni hjá þeim stéttarfélögum sem að sjóðnum standa og fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur. Um styrkúthlutanir fer eftir reglum sem stjórn Ríkismenntar setur sbr. 2. gr.

4. gr. Hlutverk

Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti:

a) Þróunar- og stofnanadeild. Hlutverk deildarinnar er að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði símenntunar sem eru í samræmi við markmið sjóðsins til:

• stofnana og atvinnurekenda sem í sjóðinn greiða

• stéttarfélaga sem að sjóðnum standa

• verkefna sem sjóðsstjórn skipuleggur

b) Starfs- og símenntunardeild. Hlutverk deildarinnar er að gefa félagsmönnum stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðnum, kost á að geta sótt án verulegs kostnaðar starfsnám og símenntun sem geri þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf. Í samræmi við markmið deildarinnar eru veittir styrkir til einstakra félagsmanna.

Jafnframt styrkja báðar deildirnar verkefni sem aðilar semja sérstaklega um í kjarasamningi.

5. gr. Stjórn

Stjórn Ríkismenntar skal skipuð fjórum mönnum, tveimur fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytis og tveimur fulltrúum landsbyggðarfélaga Starfsgreinasambands Íslands. Varamenn í stjórn skulu vera tveir, einn frá hvorum aðila. Stjórnin kýs formann og varaformann til tveggja ára í senn. Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að vera henni fylgjandi. Firmaritun Ríkismenntar er í höndum allrar stjórnar sameiginlega en framkvæmdastjóri rekstraraðila fer með prókúru fyrir sjóðinn í samræmi við þjónustusamning og úthlutunarreglur sjóðsins.

6. gr. Fjármögnun

Ríkismennt er fjármögnuð með iðgjöldum sem launagreiðandi greiðir til sjóðsins vegna hlutaðeigandi starfsmanna samkvæmt ákvæðum í kjarasamningum hverju sinni. Sjóðurinn verður ávaxtaður á þann hátt sem sjóðsstjórn telur hagkvæmasta á hverjum tíma. Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við aðra aðila um að sjá um daglega umsýslu hans, þar á meðal bókhald en halda skal aðgreint bókhald fyrir hvora deild fyrir sig.

7. gr. Reikningsár

Reikningsár Ríkismenntar er almanaksárið. Reikningar skulu liggja fyrir í síðasta lagi í apríl ár hvert og skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum sem aðilar koma sér saman um. Ársskýrsla og reikningar sjóðsins skulu árlega kynnt hlutaðeigandi aðilum.

8. gr. Önnur atriði og breytingar

Um önnur ónefnd atriði vísast til kjarasamninga fjármála- og efnahagsráðuneytis og aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands á landsbyggðinni sem í gildi eru á hverjum tíma. Breytingar á reglum þessum skulu hljóta samþykki fjármálaráðherra og stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðnum.

Samþykkt af fjármála- og efnahagsráðuneyti og SGS, 9. desember 2015

Greinar

  • 1. gr. Heiti og aðild
  • 2. gr. Deildir sjóðsins
  • 3. gr. Tilgangur og markmið
  • 4. gr. Hlutverk
  • 5. gr. Stjórn
  • 6. gr. Fjármögnun
  • 7. gr. Reikningsár
  • 8. gr. Önnur atriði og breytingar
Fræðslusjóðir
Ríkismennt
Um okkurStarfsreglurAðildarfélögStarfsfólkSkýrslur og tölfræðiSpurt og svarað
Umsóknargátt

Aðrir sjóðir

LandsmenntSjómenntSveitamennt
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík599 1450
FræðslusjóðirRíkismennt
  • Um okkur
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík599 1450

Aðrir sjóðir

LandsmenntSjómenntSveitamennt
Fræðslusjóðir (forsíða)