Stjórnir Lands-, Ríkis-, Sjó- og Sveitamenntar hafa samþykkt breytingar á reglum um úthlutun einstaklingsstyrkja. Nýju reglurnar taka gildi 1. ágúst 2026 og munu gilda um öll…
Hámark á styrkjum til tungumálanáms lækkar Samkvæmt nýjum reglum verður hámarksstyrkur sem einstaklingur getur fengið vegna tungumálanáms 180.000 krónur á almanaksári. Þá verður ekki lengur heimilt að nýta uppsafnaðan rétt til að standa undir slíkum námskostnaði.
Takmarkanir á námi erlendis Einnig verður breyting á styrkjum til náms erlendis. Framvegis verður slíkt nám ekki styrkt, nema þegar um er að ræða nám við viðurkennda háskóla. Ákvörðunin er meðal annars byggð á því að sjóðurinn er innlendur og fjármagnaður með iðgjöldum samkvæmt kjarasamningum. Markmið hans er að styrkja hæfni einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði.
Nýju reglurnar eru liður í endurskoðun á starfsemi sjóðanna með það að markmiði að tryggja skilvirkari úthlutun styrkja og betri nýtingu fjármuna.
Mynd með frétt: https://pixabay.com/


