Menntadagur SA var haldinn í Hörpu í dag.
Menntadagurinn er árlegur viðburður en að þessu sinni var yfirskrift menntadagsins „stafræn hæfni í íslensku menntakerfi og atvinnulíf“
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt fyrirtækjum sem skara fram út í fræðslu-og menntamálum. Samkaup er Menntafyrirtæki ársins og Gentle Giants – Hvalaskoðun á Húsavík hlaut Menntasprota ársins. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands afhenti verðlaunin.
Á vef www.sa.is má lesa nánar um Menntadag atvinnulífsins og viðurkenningahafana.
Að deginum standa Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þess. Landsmennt styrkti viðburðinn eins og undanfarin ár ásamt fleiri fræðslusjóðum atvinnulífsins.


