Einstaklingar hafa verið duglegir að sækja námskeið og þá sérstaklega fjarnámskeið og einnig nýtt sér frí fjarnámskeið (hámarkið er kr.30.000,- í þátttökugjald pr. námskeið þegar…
Umsóknir frá fyrirtækjum, stofnunum ríkisins og sveitarfélögum eru töluvert færri en í fyrra sem er bein afleiðing af ástandinu í þjóðfélaginu. Margir hafa samt sem áður nýtt sér aðgang að fríum námskeiðum fyrir sína starfsmenn í tengslum við Covid 19 samninga sjóðanna við fræðsluaðila.
Staðan á greiddum styrkjum það sem af er ári: Sveitamennt; greiddir styrkir til 762 einstaklinga að upphæð kr. 43.640.686,- og styrkir til Sveitarfélaga, stéttarfélaga og annara verkefna að upphæð kr. 18.128.181,- Landsmennt; greiddir styrkir til 2126 einstaklinga að upphæð kr. 138.600.002,- og styrkir til fyrirtækja, stéttarfélaga og annara verkefna að upphæð kr. 28.714.394,- Ríkismennt; greiddir styrkir til 173 einstaklinga að upphæð kr. 9.226.535,- og styrkir til stofnana, fræðsluaðila og annara fræðsluverkefna að upphæð kr. 3.555.208,- Sjómennt; greiddir styrkir til 83 einstaklinga að upphæð kr. 7.290.660,- og styrkir til fyrirtækja og annara fræðsluverkefna að upphæð 1.115.270,-.


