Gerður hefur verið samningur við NTV skólann um fulla fjármögnun á 6 námskeiðum/námsleiðum sem allt eru starfsþróunarmiðuð og verkefnadrifin fjarnámskeið sem boðið verður upp á í…
Einstaklingar skrá sig hjá NTV skólanum eða í gegnum sitt stéttarfélag og mun skólinn senda reikninga beint á skrifstofu fræðslusjóðanna.
Opnað verður fyrir skráningu á næstu dögum á heimasíðu NTV. http://www.ntv.is/is
Verkefnið er tilraunaverkefni fram að áramótum og munu námskeiðin hefjast um mánaðarmótin okt/nóv nk. Öll námskeiðin, námsefni, verkefnavinna, verkefnaskil og samskipti eru inni á nemendaumhverfi NTV skólans í gegnum nettengingu.
Námskeiðin sem um ræðir eru: Bókhald Grunnur 8 vikur (120 kes.) Digital marketing 7 vikur (112 kes.) Frá hugmynd að eigin rekstri 4 vikur (60 kes.) App og vefhönnun 6 vikur (90 kes.) Vefsíðugerð í WordPress 4 vikur (50 kes.) Skrifstofu og tölvufærni 6 vikur (96 kes.)


